Dr. Togga... bloggari!

Tuesday, September 20, 2005

Aujublogg

Jæja... hitti hana Auju mína í dag :) mikið gaman, hef ekki séð hana alltof lengi! En Auja vildi að ég bloggaði þéttar... svo nú blogga ég spes fyrir þig e'skan!

Var voða dugleg í dag... fór út að skokka, svona uþb 5km. Fór nú heldur léttar með það en þegar ég var að byrja, ótrúlegur munur! Er aðeins minni físibelgur, en mási nú samt pínu ;p
Prófið síðasta laugardag gekk bara svona lala, ekkert spes. Dálítið asnalega opnar spurningar if u ask me. En, 'etta reddast! eða á sænsku - Det ordner sig! En, þá er það hinsvega næsta próf - og alltaf skal það vera á laugardögum! virðist vera e-t þema í læknadeild þessa dagana. Hnusss!

Best að fara nú að lúlla... á að mæta á Reykjalund í fyrramálið, endurhæfingarlæknisfræði ;) gaman gaman! Get líka kíkt við hjá mömmu, þar sem ég er nú að koma í vinnuna til henna, haha!

P.s. Var nú ekki búin að upplýsa um nýjasta æðið mitt... fyrir utan skokkið... er farin að læra spænsku! Loksins lét ég verða af því, hefur alltaf langað til að læra rómanskt mál. Greip tækifærið þegar Erla, Kristín, Eddi og Sverrir fóru á námskeið og skellti mér með :)

2 Comments:

  • Já, ekki lengi að bregaðst við Ö)Ég skal vera duglegri að kvitta/commenta Ö) Rosalega ert þú öflug, skokk og spænska til viðbótar við allt hitt!Hvar finnur þú tíma???Gangi þér vel í prófunum gæskan Ö)

    By Anonymous Anonymous, at 3:15 pm  

  • Hihih (roðna bara)... tíminn fyrir þetta, ja... hann er nú svo sum ekki til og verð því bara að "búa hann til" ;o) En það er e-t heilsuátak í gangi hér. Verð nú að hafa úthald í allan mikla lesturinn í vetur fyrir embættisprófin í vor :O Takk e'ska, vona að prófið næsta laugard gangi sæmó.

    By Blogger Thorgerdur, at 6:30 pm  

Post a Comment

<< Home